Er útvarpsstöðin Bylgjan karlastöð?
Virkir dagar líta svona út:
Í bítið 6:45-9:00 1 Karl og 1 kona
Ívar Guðmundsson 9:00-13:00 1 karl
Virkir dagar 13-16 2 karlar
Reykjavík síðdegis 16:00-18:30 3 karlar
Ívar Halldórsson 19:15-23:00 1 karl
Jæja, en þetta eru nú bara virkir dagar. Helgarnar hljóta að vera aðeins betri því ekki getur þetta versnað.
Laugardagar líta svona út:
Simmi og Jói 9:00-12:00 2 karlar
Hulda Bjarna 12:20-16:00 1 kona
Veistu hver ég var 16:00-18:30 1 karl
Halli Gísla 19:00-3:00 1 karlOg sunnudagar:
Sprengisandur 10:00-12:00 1 karl
Bjarni Arason 12:20-16:00 1 karl
Og svaraðu nú 16:00-19:30 1 karl
Ívar Halldórsson 19:30-22:00 1 karl
Rólegt og rómantískt 22:00-1:00 1 karl
Um þetta er ekki mikið annað að segja en að Bylgjan er karlastöð. Ekki efast ég um að þessir 15 karlar sem stjórna 12 þáttum séu allir óvenju færir þáttastjórnendur en er ekki eitthvað bogið við þetta?
Er allt í lagi að 15 karlar stjórni 12 þáttum af 13 á svo stórri útvarpsstöð sem Bylgjan er?
Er allt í fína að 2 konur stjórni 2 þáttum af 13 á svo stórri útvarpsstöð?
Langar fólki að hlusta á útvarpsstöð þar sem varla heyrist kvenrödd?
Ég verð að viðurkenna að þetta laðar mig ekki að stöðinni en kannski segir þetta kynningarmyndband á síðdegisþættinum, Reykjavík síðdegis, allt sem segja þarf. Hér ræða karlar við karla. Tvær konur birtast í myndbandinu, önnur sem viðmælandi en hin kynnir karlana.
Mér finnst þetta svolítið 1950!


Pingback: Útvarpsraddir og myndmál « mylsnur
Já það má alveg minna daglega á þetta, ég var svo gróf að gagnrýna útvarp Suðurland ekki alls fyrir löngu fyrir að hafa 8 starfsmenn, 7 karla og 1 konu. Sagðist hlakka til að sjá kynjahlutföllin jöfnuð svo ég gæti farið að hlusta á stöðina og mæla með henni. Fékk það svar að mér væri velkomið að koma að vinna hjá þeim en þegar ég spurði hvort þetta væri atvinnutilboð fékk ég ekki svar og ekkert var þetta frekar rætt
Enda líklega sagt í hálfkæringi eða fljótfærni