Framtíðarfólk

Ég hef trú á því að þetta ár verði hressandi ár.

Tveir biskpar verða valdir og einn forseti.

Mikið vona ég að okkur beri gæfa til að velja ”framtíðarfólk” í þessi embætti.

Nú hafa þrír prestar lýst sig reiðubúna til þess að bera kápu biskups Íslands og ég geri ráð fyrir því að fleiri eigi eftir að koma fram. Þetta eru dr. Sigríður Guðmarsdóttir sóknarprestur í Grafarholtssöfnuði, sr. Kristján Valur vígslubiskup í Skálholti og dr. Sigurður Árni Þórðarson prestur í Neskirkju.

Sigríður og Sigurður Árni hafa bæði sent frá sér nokkuð ítarlegar stefnuskrár og boða bæði töluverðar breytingar sem hljóma vel. Bæði vilja þau leggja meiri áherslu á samtal, bæði við þjóðina og við þjóna kirkjunnar. Sigríður leggur mikla áherslu á lýðræði og jafnrétti og að koma á breytingum í stjórnkerfi Þjóðkirkjunnar svo eitthvað sé nefnt. Sigurður leggur m.a. áherslu á að traust kirkjusamfélagsins, jafnrétti og æskulýðsmál. Kristján Valur hefur ekki sent frá sér stefnumál en þau koma væntanlega von bráðar og ég hlakka til að kynna mér þau. Kristján Valur var nýlega valinn vígslubiskup í Skálholti.

Ísland er eina landið á norðurlöndunum sem ekki hefur enn valið sér konu sem biskup. Í vígslubiskupskjörinu síðasta sumar munaði aðeins hlutkesti á því að kosið yrði milli tveggja kvenna. Það fór þó svo að kona var ekki valin í það embætti og var glerþakið einstaklega áberandi í þeim kosningum.

Mikið vona ég að okkur beri gæfa til að velja framtíðarfólk í þessi embætti.

Sóknarnefndaformenn, varaformenn, prestar, djáknar og kirkjuþingsfólk og þjóðin öll (í forsetakosningum ef til þeirra kemur) verður að sýna að hún hugsi til framtíðar en hlaupi ekki í öruggt skjól fortíðar.

Okkur hættir til að velja fortíðina því að við þekkjum hana.

Ég held því fram að framtíð Þjóðkirkjunnar byggist á því að við veljum framtíð en ekki fortíð.

Categories: Pistlar | 4 Ummæli

Post navigation

4 thoughts on “Framtíðarfólk

  1. Þórhallur Heimisson

    Sæl Guðrún – ætlar þú ekki fram, þú hefur miklar og góðar skoðanir á embætti biskups?

  2. Arna Gretarsdottir

    Flott hjá þér, Guðrun, framtiðarkona!

  3. Þórður Guðmundsson

    Sæl Guðrún. Ég veit að þú ert mikil hugsjónamanneskja og vel máli farin. Ég mæli reyndar ekki með því að þú bjóðir þig fram til biskups eins og Þórhallur er að minnast á við þig hér að ofan. Þinn tími er ekki kominn á þeim vettvangi en það mun hann ábyggilega gera eftir einhver ár. HIns vegar þá ert þú svo áheyrileg og rödd þín ætti að hljóma áfram og oft í netheimum eins og hún gerir öllu jöfnu frá prédikunarstóli. Takk fyrir pistilinn. Bestu kveðjur til ykkar í Grafarvoginum, Þórður.

  4. Næsti biskup verður dæmdur af verkum sínum, jafnmikið og hann verður dæmdur af orðum sínum. Næsti biskup þarf að sigla kirkjuskipinu af strandstað. Íslenska kirkjan er strand:

    - fjárhagslega byggir hún á samningi við ríkisvald sem er ekki fjárhagslega burðugt. Hún þarf s.s. að finna nýja tekjustofna, jafnvel endurheimta eigur sínar og dreifa til kirkna víðsvegar um landið, til þess að sérhver söfnuður geti orðið sjálfstæður.

    - siðferðilega er hún strand vegna tveggja áratuga langrar meðvirkni með biskupi sem stóðst ekki væntingar og vegna margra kynslóða samsömun við embættiskerfi sem færir þjóðinni ójöfnuð og óréttlæti.

    - trúarlega marar hún í hálfu kafi, þar sem hún nær ekki að halda sínu með helgihaldi sínu, hefur hún þó fjárfest í ungu fólki og náð að vekja áhuga margra til að þjóna sem ungir leiðtogar.

    Næsti biskup þarf að geta brugðist við þessum veruleika og geta byggt brú til framtíðar. Hér dugir ekkert hálfkák, því á næstu tuttugu árum mun kirkjan rýrna um minnst 20% ef hún hleldur áfram án breytinga og án nálgunar við þann hluta þjóðarinnar sem býr ekki í víggirtum fílabeinsturnum.

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Bloggaðu hjá WordPress.com. Theme: Adventure Journal by Contexture International.